Sæl verið þið
Núna eru páskarnir á næsta leiti og alveg nóg að gera hjá
mér
ég er vinnandi flesta daga upp á leigu, t.d. í dag föstudaginn
langa er ég að vinna allan daginn frá opnun til kvöld, það er vegna
þess að það vantar starfsfólk þar,
langar þér ekki að koma og vinna með mér? 
það var nóg að gera í gær upp á leigu, mætti samt ekki fyrr en
kl 8 því ég var einnig að vinna allan daginn á miðvikudaginn, frá
opnum til lokunar.
sem sagt alveg nóg að gera hjá mér.
núna í kvöld eftir vinnu þá er ég að fara í innflutingspartý hjá
júkka bró og sólrúnu kærustunni hans, ég býst við að verða frekar
drukkinn þvi ég er búinn að vera vinna svo mikið og hef lítið
borðað, verð að fara fá mér að éta eitthvað, en annars þá er ég með
9 bjóra og læt það duga mér, ég held að ég nenni ekki í miðbæinn,
en það kemur þó bara í ljós, fer mest megið eftir hvernig
stemminginn verður þarna, annars mun ég bara fara heim,
ég ætla ekki að vinna upp á leigu á laugardaginn og ég sagði
þeim að ekki hringja í mig þá enda myndi ég pottþétt vera mjög
þunnur(nenni ekki að vinna þunnur)
líka ágætt að fá frídag inn á milli, enda búinn að vera vinna
mikið
það er búið að vera fínt veður hérna í bænum síðustu 2 daga sól og
svona, en núna er snjókoma, ég skil ekki þetta veður 
en já síðan var bensínið að hækka enn eina ferðina, ég spái því
að það fari upp í 150kr á þessu ári hvern líter, það kæmi mér ekki
á óvart miðað við hvernig þetta er búið að hækka undanfarnar vikur,
alveg hreint klikkun sko. og ekki ætlar ríkið að minnka sínar
álögur á bensínið, neinei. þetta þjóðfélag er á hraðri niður leið
og það er þessari bévítans ríkisstjórn að kenna, og ég vil meina að
þetta byrjaði þegar framsóknarflokkurinn lofaði 90% lánum til þess
að fólk geti keypt sér íbúð þá hækkaðu þær allsvakalega í verði,
enda eru íslendingar hriklega gráðugir að það er ekki einu sinni
fyndið.
ég mæli með því að þið kjósendur breytið til og kjósið eitthvað
annað en Sjálfstæðisflokkinn eða Framsókn, leyfa hinum að spreyta
sig og sjá hvernig það gengur, ykkur á ekki að vera sama hvaða
flokkur er við stjórn, þið eigið að taka afstöðu, ekki vera sama
hver stjórnar þessu batterý, þá lítur út fyrir að þið séuð alveg
sama hvort þið lifið eða drepist.
en jæja nóg af þessu rausi í mér í dag. ég ætla að fara fá mér
eitthvað að borða og svo fara upp á leigu að skúra helvítis
leiguna.
ég býst við því að það verði mjög mikið að gera í dag.
og já ef þér vantar vinnu, talaðu þá við mig.
over and out.
Arnar vinnualki